Elísabet Narda

Hola...bienvenidos a mi blog. Gracias por visitarme, vuelvan pronto.

Monday, April 11

4 mánaða, sund og grautur.

Í gær var stór dagur í lífi Elísabetar Narda, hún varð 4 mánaðargömul. Við byrjuðum daginn á því að fara í sund upp í Árbæjarlaug og henni fannst það ekkert smá gaman, hún grét ekki neitt og vildi ekki fara upp úr. Nú verðum við að fara oftar með hana í sund, þetta var algjört æði. Svo um kvöldið ákváðum við að það væri komin tími til að gefa henni graut þar sem hún er orðin 4 mán. Það var frekar fyndið hvernig hún brást við því, hún vissi eiginlega ekkert hvað hún átti að gera við þetta og horfði á mig undrunaraugum eins og ég væri bara hreinlega orðin eittvhað rugluð. Það fór nú ekki mikið niður en við reynum aftur í kvöld og svo á hverju kvöldi héðan í frá.

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Svakalega eru þið myndarlega fjöldkylda... Hun lilla er nu alveg til að knúsa og kjamma útí eitt...jiiiiiii hvað hún er falleg ( enda falleg gen;)
Luv úr vori og 20 stiga hita í Köben

Xrakel

Friday, 15 April, 2005  

Post a Comment

<< Home