Elísabet Narda

Hola...bienvenidos a mi blog. Gracias por visitarme, vuelvan pronto.

Tuesday, October 17

Leikskólastelpan







Hola,
Loksins koma nokkrar myndir. Það gengur rosalega vel á Dvergasteini og hleypur hún inn á hverjum morgni glöð og kát. Hún spyr á hverju kvöldi áður en hún fer að sofa hvort hún fari ekki í leikskólann á morgun, sem sagt mikil leikskólastelpa. Hún kann núna alla söngvana og er víst farin að stjórna hópsöng á meðan krakkarnir bíða eftir að komast út. Svo finnst henni ofsalega gaman að mála og hefur gert nokkur listaverk, framtíðarlistamaður á ferð ;) Um daginn tók hún meira að segja slátur og fannst það nú ekkert svakalega spennandi og vildi ekki koma við og fannst lyktin alls ekki góð. En hún borðaði með bestu list daginn eftir.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home