Litla konan





jæja nú vill hún alltaf hjálpa mömmu sinni, er voða dugleg að taka upp úr pokum og raða fínt á gólfið. Ryksugan er nú ekki í miklu uppáhaldi þegar kveikt er á henni en þegar það er slökkt þá vill hún hjálpa til. Hún reynir að klæða sig sjálf og segir bæ bæ um leið og hún setur á sig peysuna, vill bara fara út og leika.