Elísabet Narda

Hola...bienvenidos a mi blog. Gracias por visitarme, vuelvan pronto.

Saturday, September 16

Ýmislegt











Jæja nú er Elísabet Narda orðin leikskólastelpa og gengur rosalega vel. Hún er alltaf tilbúin að fara á morgnana og hleypur inn á herjum morgni, sem betur fer.
hún er farin að tala alveg svakalega mikið og er hún búin að læra nánast öll nöfnin bæði á börnunum og fóstrunum. Svo er hún voða dugleg að syngja í leikskólanum og er hún að læra alla textana.
Um daginn fórum við út að borða með ömmu og afa því hann afi sæti átti afmæli, henni finnst alltaf svo gaman með ömmu og afa og þegar hún er spurð að því hver eigi hana svarar hún alltaf "AFI" ekkert smá sætt.
Við vorum að koma úr afmæli hjá henni Sonju vinkonu og fékk hún köku með rjóma, sat hún alveg kjurr og borðaði sína köku með miklum tilþrifum.
Svo finnst henni voða gaman að leika með Heklu og gerir allt eins og hún, eins og sést þá er hún að leika á tölvunni alveg eins og Hekla.
Hún sofnar oft +ut frá bók og er bækurnar um Andra í miklu uppáhaldi.
Biðjum að heilsa í bili og endiilega sendið okkur kveðju.