Elísabet Narda
Hola...bienvenidos a mi blog. Gracias por visitarme, vuelvan pronto.
Wednesday, March 30
Sunday, March 27
Thursday, March 24
Monday, March 21
Thursday, March 17
Hress eins og fress
Hún er orðin hress stelpan. Sem betur fer var þetta ekki eins mikið og ég hélt að það mundi verða með þennan vírus, við sluppum vel ;))) Við getum reyndar ekkert farið út enn, en vonandi um helgina þegar það hlýnar.
Wednesday, March 16
Monday, March 14
Lasarus
Jæja nú er það komið í ljós að litla skinnið er komin með RS vírus, sem annað hvort barn hér heima hefur fengið. Þetta legst á lungun svo að erfiðara er fyrir hana að anda sem mér finnst frekar óhugnalegt. Við fórum upp á spítala í gær og aftur í dag. Hún fékk púst steralyf og stíla. Við fengum að fara aftur heim en þurfum að fara í skoðun á morgun líka. Hún steinsefur núna eftir langan morgun á spítalanum, hún stóð sig eins og hetja og grét nánast ekkert þegar hjúkkurnar voru að vasast í henni brosti bara til þeirra ;))))En hún verður nú vonandi fljót að jafna sig á þessu litla drottningin okkar.
Saturday, March 12
Fyrsta kvefið
Jæja nú er litla stelpan okkar komin með kvef. Ekki með hita bara hor og hósta, litla krúttið. Mér finnst þetta soldið erfitt en hún á eftir að jafna sig. Hún sofnaði mjög snemma því hún getur lítið sofið inni á daginn, finnst betra að sofa í vagninum, sem ég skil vel, hlýtur að vera mjög notalegt að láta pakka sér inn og keyra mann um. Jæja nú ætla ég að fara að hátta.
Góða nótt
Thursday, March 10
3 Mánaða í dag
Í dag var mjög mikið að gera hjá okkur mæðgum. Við byrjuðum á því að fara í 3 mán skoðun og gekk það súper vel. Hún er orðin 6,4 kg og 60 cm, svo svaka dugleg að drekka stelpan, eins og mamma sín ; ))))Hún fékk fyrstu sprautuna í dag og var hún frekar fúl út í lækninn en það gleymdist um leið og hann sýndi henni glysóróa. Eftir það fórum við að hitta ömmu Lellu og afa Svenna, henni finnst alltaf rosa gaman að fara á Skúlagötuna, svo svaka mikið að skoða þar. Síðan fórum við í kaffi til ömmu Mundu og þar hittum við Sirrý og Þórdísi, hún bara hló og hló henni fannst svo svaka gaman að hitta þær, allt í stuði barnið, hefur ekki langt að sækja stuðskapið.