Elísabet Narda

Hola...bienvenidos a mi blog. Gracias por visitarme, vuelvan pronto.

Wednesday, July 26

Honduras dagar á Framabraut











Fjölskyldu meðlimir hans Pablo eru í heimsókn og verða í mánuð. Íris móðursystir Pablo og sonur hennar Julio, það er búið að vera mikið stuð. Þau eru að passa hana á daginn þar sem dagmamman er í sumarfríi og finnst henni mjög gaman að vera með þeim. Það er mjög fyndið hvað hún er virkilega dugleg að tala spænsku og svissar yfir í íslensku þegar hún talar við mömmu sína.
Elísabet Narda elskar köngulær, deilir því áhugamáli með henni Söru sætu, í hvert skipti sem það er könguló nálægt kallar hún KÖNGULÓ !!! voða sætt.
hún er dugleg að hjálpa mömmu sinni í eldhúsinu og er alltaf tilbúin að hjálpa.
Við förum líka oft í hjólatúra og er það í miklu uppáhaldi.
Endilega skrifið okkur kveðju því okkur finnst það svo skemmtilegt ; )